laugardagur, febrúar 14, 2004
Að tilnefna og kjósa sjálfan sig
Hlustendaverðlaun FM957 voru afhent með viðhöfn í gær. Það er allt saman gott og blessað, bara verst að sú útvarpsstöð hafi úr einhverjum hlustendum að moða sem sjá um að kjósa. En hvað um það. Já og meðan ég man. Vinur minn fór því miður á hátíðina. En... hverjir sjá um að tilnefna þá sem kjósendur geta kosið? Er það ekki útvarpsráð FM957 eða einhver álíka nefnd, ég alla vega get mér til um að fyrirkomulagið á tilnefningum sé á þá leið. Mikið af þeim poppurum sem tilnefndir eru vinna eða hafa unnið á stöðinni. Flestar hljómsveitirnar eru með útgáfusamning hjá Skífunni sem er líkt og FM957 í eigu Norðurljósa (Hvað er ekki í eigu Norðurljósa?). Þarna sem sagt tilnefna einhverjir njólar sjálfa sig og láta svo þá bjána sem eru nógu vitlausir til að fylgjast með því sem fram fer á stöðinni kjósa á milli sín og vina sinna. Mér finnst þetta asnalegt. Ég ætla að líkja þessari samkomu við það að fyrirtækið sem ég vinn hjá þegar ég er ekki skóla efndu til sambærilegrar verðlaunahátíðar. Ég vinn hjá Fagmál. Starfsmenn fyrirtækisins starfa við húsamálun og fyrirtækið gefur sig út fyrir að vera svona húsamálunarfyrirtæki. En hvað um það. Hlustendaverðlaun FM957 eru svona eins og Fagmál efndi til Málaraverðlauna Fagmáls. Við myndum að sjálfsögðu tilnefna sjálfa okkur og fólk fengi að gera upp á milli okkar félaganna. Hægt væri að efna til kosningar í fjölmörgum flokkum t.d:
Skurður ársins!
Rúllun ársins!
Besta áferðin!
Slípun ársins!
Kíttun ársins!
Best málaði veggurinn! (sbr, Lag ársins)
Best málaða húsið! (sbr. Plata ársins)
Kynþokkafyllsti málarinn! (Gunni myndi rúlla því upp)
Besti glugginn!
Besti nýliðinn!
Málari ársins! (sbr. Söngvari/söngkona ársins)
Fyrirtækið gæti svo státað sig af því í auglýsingum að það hefði hreinlega sópað til sín verðlaunum á Málaraverðlaunum Fagmáls. Ekki ónýt auglýsing það.

fimmtudagur, janúar 29, 2004
Jæja...
Það er nú ansi langt síðan ég bloggaði síðast. Svei mér þá, það var í fyrra. Merkilegt. Búin að koma jól og fara jól, koma áramót og fara áramót. Og eflaust margt fleira búið að koma og fara. Þannig er nú það. Allt kemur og fer. Nú síðast kom þorrinn. Helv#$%& þorrinn. Hvað er málið með þennan þorra? Til hvers eiginlega að halda upp á þorrann? Fólk getur bara borðað vondan mat á hvaða tíma árs sem er og ekki verið að velta öllu Íslandi upp úr súr. Fyrir mér er þorrinn ekki neitt nema ávísun á það að allt of margir góðir Íslendingar hætti lífi sínu við það að éta handónýtan "mat". Ég efast um að þessir áhættufíklar væru tilbúnir að éta rollu ef ég migi...... Nei best að sleppa þessu. Og svo bjóða leikskólar saklausum börnum (flest eru þau óvitar) upp á súrmat. Spila með aumingja börnin til að borða óþverran. Og blessuð börnin leggja allt sitt traust á leikskólakennarann sinn. Það ætti að vera heilt námskeið í KHÍ sem felst í því að kenna verðandi leikskólakennurum að það er ljótt að plata lítil börn til að borða vondan mat. Guð segir að það sé ljótt að ljúga. Og ekki lýgur hann blessaður karlinn. Nei best að hætta áður en sleggjurnar verða of stórar og þungar.
Af því að ég minntist á jólin. Það er til jóla-allt. Jólatré, jólasveinar, jólaskraut, jólagjafir, jólaöl, jóladagskrá sjónvarpsstöðva o.s.frv. Jólalistinn er endalaus (sko það er meira að segja til jólalisti). Eitt finnst mér þó hvað undarlegast og það er jólaklósettpappír. Jólin, þessi hátíð ljóss og friðar, eru þá ekki merkilegri en svo að við tökum þau og skeinum okkur á þeim. Annars finnst mér jólin fín.
Ef einhverjum finnst þessi jólahugleiðing mín vera helst til seint á ferðinni þá get ég tekið undir það. Aftur á móti bið ég þann sama að skoða húsið sitt vel og vandlega. Miðað við hversu mikið af jólaskrauti hangir enn uppi er mjög líklegt að sá hinn sami og þetta les hafi hreinlega gleymt að taka niður sitt jólahafurtask og skraut.
Að lokum vil ég hvetja alla þá sem hafa nennt að lesa þetta til að panta sér ógrynni af pizzum á þorranum. Pizzan er ósúr, bragðgóð og nýbökuð.

miðvikudagur, desember 10, 2003
Djö......
Jæja, langt síðan ég hef bloggað. Brjálað að gera við próflestur. Búin að fá einkunn úr einu prófi, fékk 9 í rúmfræði, ekkert að því.
Annars blæs ekki byrlega hjá mínum mönnum í Palace. Kíkið hér til að sjá nákvæmlega hvað ég meina.
Áfram Palace

sunnudagur, nóvember 30, 2003
Völsungar tóku titil
Lék með mínu liði á Íslandsmótinu innanhúss um helgina. Skemmst frá því að segja að við urðum Íslandsmeistarar, ekkert að því. Slógum Fram út í 8-liða úrslitum í dag, unnum 4-0. Tókum svo Skagamenn, sigruðum 2-1. Þá var bara úrslitaleikurinn eftir og mættum við, Völsungar, Valsmönnum. Leikurinn var æsispennandi. Valsmenn komust yfir 1-0 en við náðum að jafna fyrir hálfleik. Í seinni hálfleik komust Valsmenn aftur yfir, 2-1, en Völsi náði að jafna 5 sekúndum fyrir leikslok 2-2. Því þurfti að framlengja leikinn. Við skoruðum eitt mark í framlengingunni en Valsarar ekkert. Þar með var það orðið ljóst að við í Völsungi vorum orðnir Íslandsmeistarar í innanhússknattspyrnu 2003. Ég vil óska mér, samherjum mínum og öllum stuðningsmönnum Völsungs til hamingju með titilinn. Fram, Valur og ÍA áttu ekki roð í piltana að norðan og það er bókstaflega ekkert að því, ekki neitt.
Punktur!
Áfram Völsungur.
Punktur!
Áfram Völsungur.
miðvikudagur, nóvember 26, 2003
Kíkt á aðrar síður
Ég kíkti á skilasíðu Margrétar Þórisdóttur samnemanda míns. Við erum bæði í námskeiðinu Upplýsingatækni og skólastarf. Síðan hennar er mjög fín, öllum verkefnum gerð góð skil. Bloggið hennar nokkuð gott og gaman að því að hún skuli hafa skellt sér á tónleika með rokkurunum í 200.000 naglbítum. Producer-kynningin um tennurnar sérstaklega góð. Smelltu hér til að skoða síðuna hjá Möggu.
Og svo er bara að muna að bursta vel.
Og svo er bara að muna að bursta vel.
Nauj
Djöfull munaði litlu að ég hafi póstað banana-bloggið klukkan tólf á hádegi akkúrat. Það munaði bara einni sekúndu. Nauj.
Loksins
Stoke - Palace 0 - 1.
Fín úrslit í gær hjá Palace. Fyrsti sigurinn mjög lengi sem er ánægjulegt. Bíðið þið bara, þeir eiga eftir að verða fleiri, miklu fleiri. Og svo sýndu þeir á sjónvarpsstöðinni Sýn einhverja drasl leiki úr Meistaradeild Evrópu. Hvað er það? Firmakeppni? Af hverju sýna þeir ekki Palace? Ég er viss um að það myndi vekja áhuga hjá fólki á stöðinni.

föstudagur, nóvember 21, 2003
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
Hver hefur ekki þurft að svara þessari spurningu oft og mörgum sinnum. Flestum kann að virðast sem svarið liggi í augum uppi. En reyndin er önnur. Það er að mörgu að hyggja þegar maður svarar þessari spurningu og ótal spurningar aðrar kunna að vakna. Sem dæmi mætti nefna:
Er uppáhaldsmaturinn minn sá matur sem mér þykir bestur á bragðið?
Eða er uppáhaldsmaturinn minn sá matur sem ég borða mest af?
Ég hef velt þessu aðeins fyrir mér og komist að niðurstöðu. Uppáhaldsmaturinn minn er samloka með banana á milli og Kókómjólk að drekka með herlegheitunum. Ástæðan er sú að mér finnst þessi matur mjög bragðgóður og svo það að ég borða mjög mikið af þessum mat. Í framhaldi af þessari uppgötvun langaði mig að kanna aðeins betur hversu mikið ég hef borðað af þessum mat í raun og veru. Niðurstöður úr þeirri óformlegu rannsókn eru eftirfarandi:
Alla mína grunnskólagöngu tók ég samloku með banana og Kókómjólk með mér í nesti. Grunnskólagangan spannaði 10 ár. Lengd grunnskólaársins í dag er 170 dagar en var aðeins styttri þegar ég var í grunnskóla. Ég ætla samt sem áður að gefa mér það að árið hafi verið 170 dagar því suma daga tók ég tvær samlokur með mér í skólann og tvær kókómjólk. Allt í lagi. Þetta gerir 1700 samlokur með banana og 1700 Kókómjólkur-fernur.
Því næst tók við nám í framhaldsskóla. Ég ætla að gefa mér sömu forsendur í þessum útreikningum og í útreikningum fyrir grunnskólann. Skólaárið er aðeins styttra í framhaldsskóla en í grunnskóla en á móti kemur að ég var stærri og mun hungraðari. Sumsé 170 * 4, þar sem ég var fjögur ár í framhaldsskóla. Þetta gerir 680 samlokur með banana og 680 Kókómjólkur-fernur.
Nú er ég í háskóla og enn er samloka með banana og Kókómjólk í skólatöskunni. Ég hef verið eitt og hálft ár í háskóla og oftar en ekki eru tvær samlokur og tvær Kókómjólk meðferðis því ég er svangur að eðlisfari. Þetta gerir 255 samlokur með banana og 255 Kókómjólkur-fernur.
Ef við tökum nú niðurstöðurnar saman sést að ég hef borðað 2635 samlokur með banana og drukkið 2635 Kókómjólkur-fernur á minni skólagöngu (og enn er eitt og hálft ár eftir). Nokkuð gott.
Nú má leika sér aðeins með þessar staðreyndir. Skoðum fyrst Kókómjólkurtölurnar.
2635 Kókómjólkur-fernur gera 658.75 lítra af Kókómjólk. Það er ansi góður árangur. Kókómjólk kaupi ég oftast sex saman í pakka. Það samsvarar því að ég hafi keypt rétt rúmlega 439 pakkningar. Þetta eru merkilegar tölur. Ef ég hefði alltaf keypt kókómjólkina í lengjum, 18 saman í pakka, væri ég búinn að kaupa rúmlega 146 lengjur.
Kíkjum á bananana (skrýtið orð). Ég hef reiknað það út að ég þarf 1 1/2 banana til að gera tvær samlokur. Ég hef því smurt rúmlega 1756 bönunum á brauð. Segjum að meðalbanani sé 200 grömm (hef ekki hugmynd um það og ítrekuð leit á netinu að tölfræði yfir meðalbananann skilaði litlum árangri). Það jafngildir því að ég hafi smurt 351.2 kílóum af bönunum á brauð. Ég vann eitt sinn í Hagkaup. Bananarnir komu í kössum inn í verslunina og voru 25 kíló í kassa. Ég hef því borðað sem nemur rúmlega 14 kössum af bönunum. Það er næstum því heilt bretti.
Ég hef semsagt borðað 351.2 kíló af bönunum og drukkið 658.75 lítra af kókómjólk í skólanum. Já, bara í skólanum. Ég hef ekki tekið inn í útreikningana alla bananana og kókómjólkurnar (sjálfsagt ekki góð íslenska) sem ég hef étið og drukkið utan skóla. Og svo allt brauðið.
Ég er að spá í að leita eftir samningum við þá aðila er framleiða banana og Kókómjólk og athuga hvort þeir séu ekki til í að gera við mig samning, líkt og Adidas gerir við Beckham. Ég gæti leikið í auglýsingum þar sem ég sést háma í mig banana og brauð og þamba kókómjólk í nafni Chiquita eða DelMonte, Myllunnar eða Heimabakarís og Mjólkursamsölunnar. Svo myndi ég að sjálfsögðu alltaf borða þeirra vörur, líkt og Beckham spilar alltaf í skóm frá Adidas. Þetta myndi væntanlega spara mér stórfé þar sem ég myndi fá myndarlega matarstyrki frá viðkomandi fyrirtækjum.
Ég hef ekki þorað að reikna út hvað herlegheitin hafa kostað. Það er gert vegna þess að ég myndi sennilega gráta mig í svefn af skömm yfir því að láta elskulegu móður mína kaupa alla þessa banana, allt þetta brauð og alla Kókómjólkina. Svo ekki sé talað um allan kostnaðinn sem lagður er á herðar mínar, fátæka námsmannsins, nú þegar ég er ekki heima hjá mömmu.
Ég hef því komist að eftirfarandi niðurstöðu. Minn uppáhaldsmatur er:
Samloka með banana á milli og Kókómjólk að drekka.
Ákvörðunin er byggð á því hversu gott þetta er á bragðið og ekki síður því hversu óhemju mikið magn ég hef borðað af þessari fæðu.
Kveðja, Böbbi banani

fimmtudagur, nóvember 20, 2003
Rúmfræði
Hef verið að vinna í forritinu Geometer´s Sketchpad undanfarið. Ansi skemmtilegt forrit þar sem hægt er að framkvæma hinar ýmsu rúmfræðilegu mælingar. Er búinn að setja nokkur verkefni inn á heimasíðuna mína. Smelltu hér ef þú vilt skoða þau.
Mæla með því að þið skoðið þetta ansi skemmtilega myndband við lag NOFX "Idiot son of an A-hole". Smelltu hér til að sjá myndband.